2012 - Nýtt Upphaf
2012 - Nýtt upphaf er verkefni á vegum Northern Lights Energy. Markmiðið er að bílafloti landsmanna verði knúinn áfram af raforku og að lágmarki 50.000 rafbílar verði komnir á göturnar fyrir árslok 2012.

http://www.2012.is
Information
Founded:
Júní 2008
 

Spurt og svarað er viðleitni til skýra á einfaldan hátt helstu atriði varðandi verkefnið 2012 og þá þætti sem tengjast verkefninu.



Hvað er rafbíll?

Rafbíll er bíll sem gengur að fullu eða hluta til fyrir rafmagni. Rafbíll getur verið með eða án hjálparmótora og með eða án möguleika á að vera Plöggaður við rafmagn.

Hvað er "Nýtt upphaf"?

Nýtt upphaf er verkefni sem Northern Lights Energy hefur sett af stað til að skapa nýtt upphaf í notkun rafbíla á Íslandi. Markmiðið er að setja upp heilstætt kerfi með rafpóstum og hraðhleðslustöðvum um land allt fyrir árslok 2012.

Afhverju 2012?

Að setja sér tímaramma er þekkt aðferð til að knýja þá sem að verkefnum standa til að klára á settum tíma. Fjöldi aðila víða um heim er að setja sér svipuð markmið og 2012 gerir. Þetta er ekki spurning um það hvort þetta sé hægt heldur um viljann til að framkvæma á tilsettum tíma.
Hægt væri að orða markmiðið þannig að 2012 Nýtt upphaf vilji stuðla að því að þjóðin hætti að kaupa olíu og bensín fyrir tugi milljarða fyrir árslok 2012. Hvernig hljómar það?

Hvað er "Plöggið"?

Plöggið er heildar kerfið sem 2012 Nýtt upphaf er að setja upp til að veita eigendum rafbíla, rafhleðslu líkt og bensín á tanka fyrir bensínbíla.
Ertu Plöggaður ?

Hvað kostar áskrift að Plögginu?

Ekki er hægt að segja til um endanlegan kostnað við uppsetningu og annað er viðkemur Plögginu . Þar af leiðandi er ekki raunhæft að nefna neinar tölur um áskriftargjöld. Hinsvegar er það einlæg von þeirra sem að verkefninu standa að kostnaður rafbílaeigenda verði ekki nema 25-30% af þeim orkukostnaði sem er við rekstur hefðbundins bensín- eða díselbíls í dag.

Er raunhæft að nota rafmagn sem orkugjafa á bíla?

Já.

Hvað er "rafhleðslupóstur"?

Rafhleðslupóstur er settur upp til að hlaða rafbíla á öðrum stöðum en við heimili. Rafhleðslupóstar verða staðsettir á sem flestum bílastæðum og við götur. Hægt verður að tengja einn eða fleiri bíla á suma rafpósta.

Hvað er "Hraðhleðslupóstur"?

Hraðhleðslupóstur er ætlaður fyrir snögga hleðslu á rafbílinn ef ekki er möguleiki á að hlaða á hefðbundin hátt. Með hraðhleðslu er hægt að fá allt að 95% af fullri hleðslu á 10 – 30 mínútum og fer það eftir tegund rafhlaðna.

Er auðvelt að hlaða rafbíla?

Já.
Þú einfaldlega Plöggar bílinn við rafhleðslupóst og bíllin er í hleðslu.

Hvað tekur langan tíma að hlaða rafbíl?

Það fer eftir tegundum rafhlaðna. Almennt er hægt að segja að það taka 3-4 tíma að hlaða tóma rafhlöðu. Með hraðhleðslu tekur 10 – 30 mínútur að hlaða allt að 95% af hleðslunni. Sumir bílaframleiðendur hafa tekið þá ákvörðun að bjóða sem valkost rafhlöður sem ætlaðar eru eingöngu fyrir hraðhleðslu og ná t.d. 95% á 10 mínútum.

Eru rafhlöðurnar hættulegar?

Til eru nokkrar gerðir rafhlaðna sem notaðar eru í rafbíla í dag. Flestir nýrri gerðir nota Lithium í bland við aðra málma. Þær eru mjög öruggar.

Hvað er Áskrift að Plögginu?

Með áskrift að Plögginu fær notandi aðgang að raf- og hraðhleðslupóstum um land allt. Þetta tryggir honum aðgang að rafmagni til áfyllingar á rafbílinn svipað og um bensínstöð væri að ræða. Að auki verður í boði ýmis þjónusta sem kynnt verður síðar.

Ætla má að með áskrift muni rafbílaeigandi greiða einungis 25-30% af orkukostnaði hefðbundins bensín- eða díselbíls.

Er umhverfisvænt að nota rafhlöður?

Já.
Auðvitað eru framleiðendur rafhlaðna eins misjafnir og þeir eru margir. Hinsvegar er ending rafhlaðna orðin allt að 5-10 ár í dag og er að lengjast. Framleiðslan er ekki talin menga meira en það sem rafhlöðurnar geta sparað í eitruðum útblæstri bíla. Ríkisstjórn Bandaríkjanna hefur ákveðið að setja gríðarlegar upphæðir í þróun og framleiðslu rafhlaðna fyrir rafbíla.

Hvað endast rafhlöðurnar lengi?

Það er misjafnt en almennt má tala um 5-10 ár. Fer það eftir hversu oft er hlaðið og hvernig notkunin er.

Hvernig rafbíla er hægt að kaupa?

Í dag eru nokkrir tugir tegunda rafbíla í boði frá mjög mörgum framleiðendum. Nær allir helstu bílaframleiðendur heimsins eru komnir með eða eru að koma með rafbíla á markað. Á árunum 2009 til 2012 er áætlað að yfir 70 nýjar tegundir komi á markað.

Eru rafbílar hraðskreiðir?

Já.
Hægt er að nefna marga hraðskreiða bíla en það nægir að nefna einn sem er Tesla Motors Roadster. Hann er 3,9 sek. í hundraðið og hann kemst mun hraðar en leyfilegt er að keyra á götum hér á landi.

Eru rafbílar háværir?

Nei.
Það heyrist nánast ekkert nema vegahljóðið þegar rafbíll er keyrður. Sumir bílaframleiðendur hafa hugleitt að bjóða hljóð á diskum til að spila í sérstökum spilurum fyrir þá sem vilja endilega láta heyrast í bílnum. Þá væri hægt að panta sér hljóð frá frægum bílum eins og Ferrari eða Aston Martin.

Eru rafbílar ljótir?

Nei.
Sumir rafbílar eru hinsvegar mjög fallegir en auðvitað er smekkur manna misjafn. Við látum þig dæma um fegurð þeirra en bendum á þessa hér til að skoða.

Eru rafbílar endingargóðir?

Já.
Þ.e. eins og aðrir bílar auðvitað. Þetta eru alveg eins bílar og bensín- eða díselbílar og framleiddir af sömu framleiðendum meira og minna. Hinsvegar hafa rafbílar þá kosti að mótor og gírskipting er í mjög mörgum tilfellum mun einfaldari og þ.a.l. endingarbetri.

Hvernig mótor er í rafbílum?

Mótorar í rafbílum eru yfirleitt frá 24 voltum og uppúr. Bílaframleiðendur eru að þróa nýja mótora og er mjög spennandi að sjá hvernig til tekst. Þó má segja um þá flesta að þeir hafa mun færri íhluti en hefðbundnir bílmótorar og verða því væntanlega mun einfaldari og ódýrari í rekstri.

Eru margir að framleiða rafbíla?

Já.
Nánast allir stóru bílaframleiðendurnir eru búnir að kynna eða stefna á að kynna einn eða fleiri rafbíl á þessu eða næsta ári. Bílaframleiðendi mun nota meira og minna sömu tæknina í öll sín módel. Þannig geta þeir boðið mörg módel þegar þeir hafa ákveðið hvaða tækni þeir nota.

Eru til bílar sem eru eingöngu knúnir rafmagni?

Já.
Það eru líka til rafbílar sem nota einungis rafmagn að hluta sem orkugjafa. Þetta eru t.d. svokallaðir Tvinnbílar. Slík tækni er svolítið mismundandi og fer það eftir framleiðendum hversu mikið bílinn er knúinn rafmagn. Flestir slíkir bílar nota aðra orku en rafmagn til að knýja bílvélina og framleiða jafnframt rafmagn sem hlaðið er á rafhlöður til notkunar fyrir rafmótorinn. Slíkir bílar eru líka til sem Plögg inn bílar þ.e. hægt er að tengja þá við rafmagn eins og 100% rafbíla.
Það væri að æra óstöðugan að sýna fram og útskýra allar tegundir og útfærslur en hægt er að sjá nokkrar tegundir raf- og tvinnbíla hér.

Er sami kraftur í upphafi ferðar rafbíls og enda?

Já.
Krafturinn í rafhlöðunni er nánast sá sami við upphaf og við endi ferðar.

Hvernig rafmagns-úttak þarf til hleðslu rafbíla?

Það fer eftir gerð bílsins og þeirrar tegundar rafhlöðu sem notuð er í bílinn. Flestir bílar eru gerðir með það í huga að hægt er að hlaða þá á einfaldan hátt á heimilum fólks.

Verða rafbílar hlaðnir á dag eða næturtaxta?

Sá aðili sem fær sér áskrift að Plögginu þarf ekki að hugsa um það hvort hann hlaði að degi til eða kvöldlagi.

2012 boðar nýtt upphaf í notkun bíla á Íslandi. Markmiðið er að bílafloti landsmanna verði að stærstum hluta knúinn áfram af raforku fyrir árslok 2012.



Til að það markmið náist þarf fyrst að sannfæra Íslendinga um að þetta sé framkvæmanlegt. 2012 hefur þegar hafist handa við að byggja upp kerfi sem gefur notendum rafbíla kost á því að Plögga bílana sína við Rafhleðslupósta um land allt. Það mun tryggja að eigendur rafbíla geta keyrt áhyggjulausir um landið þó að hleðslan minnki.

2012 vinnur einnig að því að finna leiðir til að flytja út og selja bifreiðar landsmanna og aðstoða við kaup á rafbílum. Um 70 tegundir rafbíla frá öllum helstu bifreiðaframleiðendum heims koma á markað á næstu þremur árum . Boðið verður upp á fjármögnun og sérstakar tryggingar fyrir kaupendur rafbílanna.

Ljóst er að allir þurfa að leggjast á eitt um að breyta hugsun og hegðun - en á jákvæðan og skemmtilegan hátt. Það hlýtur að vera gaman að vera með í að breyta neyslumynstri með það að leiðarljósi að menga minna og nýta um leið sjálfbæra innlenda orkugjafa.

Nauðsynlegt er að nýta betur einstaka tækniþekkingu hér á landi við framleiðslu rafmagns og byggja upp vistvænt Ísland sem um leið mun varða götu annarra þjóða í vistvænni samgöngutækni.

Plögg er áskriftarkerfi fyrir rafbílaeigendur sem 2012 Nýtt upphaf setur upp. Kerfið veitir aðgang að neti rafhleðslupósta og hraðhleðslustöðva um land allt.

Kerfið verður að fullu uppsett fyrir árslok 2012.

Með uppsetningu kerfisins verður rutt úr vegi hindrunum fyrir því að fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar geti nýtt sér rafbíla.
See more notes

2012 - Nýtt Upphaf's Notes