Með endurreisn sparisjóðs í Hafnarfirði getum við sem samfélag markað tímamót, sagt skilið við hið gamla bankakerfi sem flestir eru sammála um að hafi gert þjóðfélagi okkar meira ógagn en flest annað á undanförnum árum. Við g
Information
- Category:
- Organizations - Community Organizations
- Description:
- Á síðustu árum fyrir hrunið voru áberandi háværar raddir sem fullyrtu að rekstur hefðbundinna sparisjóða væri tímaskekkja, þeir væru úreltar stofnanir sem gætu ekki lifað af í breyttum heimi. Reynslan hefur hins vegar kennt okkur að þessi málflutningur átti ekki við rök að styðjast. Hið upphaflega markmið sparisjóðanna passaði hins vegar ekki inní þá mynd sem útrásarbankarnir vildu að væri ráðandi í rekstri íslenskra fjármálafyrirtækja og má segja að á tiltölulega stuttum tíma hafi sparisjóðunum og þeirri hugsjón sem þeir byggðu á verið rutt úr vegi.
Sparisjóður Hafnarfjarðar var fyrst stofnaður árið 1902 en saga hans nær aftur til ársins 1875 þegar Sparisjóður Álftanesshrepps var stofnaður. Í meira en heila öld var Sparisjóðurinn hornsteinn atvinnu- og viðskiptalífs í Hafnarfirði. Sjóðurinn þjónaði hafnfirskum fyrirtækjum og almenningi með miklum sóma og hafði það yfirlýsta markmið að gera það á sem hagkvæmastan hátt. Enginn var hluthafi í sparisjóðnum og starfsfólk hans fékk greidd venjuleg laun. Þar voru menn ekki sérstaklega verðlaunaðir fyrir það eitt að mæta til vinnu og þar voru engir ofurlaunamenn á launskrá. Þar starfaði gott og heiðarlegt fólk sem hafði sýnt það og sannað að það kynni til þeirra verka sem sparisjóðurinn vann í þágu bæjarbúa.
Sparisjóður Hafnarfjarðar var frá upphafi rekinn sem sjálfseignarstofnun líkt og aðrir sparisjóðir og var markmiðið með rekstri hans að veita almenna fjármálaþjónustu á grundvelli hugsjóna um eflingu og uppbyggingu atvinnulífs og menningarstarfs á heimasvæðinuMeð endurreisn sparisjóðs í Hafnarfirði getum við sem samfélag markað tímamót, sagt skilið við hið gamla bankakerfi sem flestir eru sammála um að hafi gert þjóðfélagi okkar meira ógagn en flest annað á undanförnum árum. Við getum stofnað okkar eigin fjármálastofnun sem ólíkt hinum bönkunum hefur það ekki að markmiði að hámarka arð tiltekinna eigenda, heldur fyrst og síðast hag sparifjáreigenda og almennings.
Fjármálafyrirtæki þurfa ekki að vera stórar og flóknar einingar með mikla og dýra yfirbyggingu. Eðli þeirra er í grunninn tiltölulega einfalt, að tryggja einstaklingum og fyrirtækjum eðlilega ávöxtun sparnaðar og nauðsynlega lánafyrirgreiðslu á samkeppnishæfum kjörum.
Við getum skapað okkur val.
Við getum búið til okkar eigin sparisjóð sem þjónar okkar hagsmunum en ekki einhverra ósýnilegra kröfuhafa og skilanefndarmanna á ofurlaunum.Með stofnun þessa hóps vil ég hefja umræðuna, búa til samtakamátt sem ætlað er að skila sér í endurreisn Sparisjóðs Hafnarfjarðar. Til þess þarf ekkert annað en vilja, samstöðu og gott fólk. Þrátt fyrir allt þá held ég að af því eigum við sem betur fer enn nóg. (read less)Á síðustu árum fyrir hrunið voru áberandi háværar raddir sem fullyrtu að rekstur hefðbundinna sparisjóða væri tímaskekkja, þeir væru úreltar stofnanir sem gætu ekki lifað af í breyttum heimi. Reynslan hefur hins vegar kennt okkur að þessi málflutningur átti ekki við rök að styðjast. Hið upphaflega markmið sparisjóðanna passaði hins vegar ekki inní þá mynd sem útrásarbankarnir vildu að væri ráðandi í rekstri íslenskra fjármálafyrirtækja og má segja að á tiltölulega stuttum tíma hafi... (read more) - Privacy Type:
- Open: All content is public.
Admins
- Gunnar (creator)
Links
Basic Info
- Name:
- Áhugahópur um endurreisn Sparisjóðs Hafnarfjarðar

Contact Info
- Email:
- gunnaraxel@gmail.com
- Location:
- Hafnarfjörður, Iceland