Dýrahjálp Íslands
www.dyrahjalp.is
Information
Founded:
14. apríl 2008
Fans

6 of 8,192 fansSee All

Sigríður
Sigríður
 
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands minnir alla gæludýraeigendur á að halda dýrunum sínum inni í dag og kvöld!

Thu at 2:53am
Sigríður Elísa Eiríksdóttir
Sigríður Elísa Eiríksdóttir
já, ef þú ert mikið að knúsa þau.. þá ertu eiginlega að verðlauna þau fyrir að vera svona hrædd og taugaveikluð, er samt að pæla hvort að hondurinn minn þurfi nokkuð róandi, hann er alveg að farast núna úr hræðslu..
Thu at 6:55am
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Skuggi
og Loki eru að leita sér að framtíðarheimili. Þetta eru hefðarkettir
sem munu gera verðandi eigendur virkilega hamingjusama. Þeir þurfa ekki
að fara saman :)
Hér eru tenglaupplýsingar um þá:
Skuggi: http://dyrahjalp.is/dyrin/kettir/2009/11/08/skuggi/
Loki: http://dyrahjalp.is/dyrin/kettir/2009/11/08/loki/

dyrahjalp.is
Níels Sigurðsson
Níels Sigurðsson
Ég vona það líka
December 16, 2009 at 4:55am
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Auglýsing um fundinn kött: Saknar einhver lítillar, nokkurra mán læðu í Reykjanesbæ. Hún er marglir,appelsínu,svört,hvít og ljósbrún. Fannst í fyrradag. Er orðin frekar horuð en annars lítur hún út sem mjög heilbrigð og hefur sennilega ekki farið langt að heiman. Ca 4-5 mánaða. Ef þú kannast við kisu þá hafðu samband: hrisey@simnet.is.

December 11, 2009 at 1:54pm
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Hvolpur fæst gefins á gott heimili. Móðirin er einstaklega ljúf og góð (hreinræktuð) Bordercollie tík, og faðirinn er ofsalega ljúfur og mjög barngóður (hreinræktaður) Scaferhundur. Hvolpurinn, sem er rakki verður tilbúinn til afhendingar um jólin, en þau systkynin eru öll mjög kát, blíð og heilbrigð.

December 1, 2009 at 3:26pm
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Halló halló dýravinir Íslands

Dýrahjálp Íslands verður með dýr sem eru í leit að nýjum heimilum þann 5. des frá klukkan 13:00 til 17:00 í Dýraríkinu, Garðabæ. Ef það er verið að hugsa um að bæta við nýjum meðlimum í fjölskylduna er um að gera og mæta á svæðið þar sem dýrum bráðvantar ný og elskuleg heimili :) Að þessu ...sinni verða einungis þau dýr sem eru á fósturheimilum Dýrahjálpar Íslands.

Með von um að sjá sem flesta,
Dýrahjálp Íslands.

See More
Time:1:00PM Saturday, December 5th
Location:Dýraríkið
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Dýrahjálp Íslands verður með dýr sem eru í leit að nýjum heimilum þann 5. des frá klukkan 13:00 til 17:00 í Dýraríkinu, Garðabæ. Ef það er verið að hugsa um að bæta við nýjum meðlimum í fjölskylduna er um að gera og mæta á svæðið þar sem dýrum bráðvantar ný og elskuleg heimili :) Að þessu sinni verða einungis þau dýr sem eru á fósturheimilum Dýrahjálpar Íslands.

December 1, 2009 at 3:17pm
Elísabet
Elísabet
Úff ef ég gæti myndi ég fylla húsið af dýrum en ég á nóg með kanínurnar mínar þrjár! Gott fyrir sálina að sjá um lítil dýr, ég mæli með því :)
December 1, 2009 at 5:47pm
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands bendir á að til að vera sjálfboðaliði í Dýrahjálp Íslands og aðstoða við hina ýmsu atburði þá skráið þið ykkur hér --> http://dyrahjalp.is/sjalfbodalidi/ Æðislegur félagsskapur og virkilega gefandi starf! :)

Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Hundaganga Dýrahjálpar og Voffaborgar!!

Sunnudaginn 29. nóvember næstkomandi mun Voffaborg standa fyrir hundagöngu til styrktar Dýrahjálpar Íslands.

Mæting er kl 13:30 og er öllum frjálst að mæta með hunda sína, fyrir hvern hund í göngunni er eigendum skylt að greiða 500 krónur fyrir en fær í staðinn happdrættismiða (o...g að sjálfsögðu má hver og einn greiða meira fyrir happdrættismiðann ). Dregið verður úr happdrættismiðum hundanna og í verðlaun verða gjafir fyrir hundana frá hinum ýmsu aðilum sem hafa ákveðið að styrkja þennan skemmtilega atburð.

ATH. Ekki er hægt að taka við kortum.

Mæting er við Reiðhöllina í Víðidal kl. 13:30. Áætlað er að gangan taki um 1-1,5 klst.

Eftir gönguna verður kaffi og með því selt í reiðhöllinni. Allur ágóði af þessum degi rennur beint til Dýrahjálpar.

Mætum öll hress og kát og gerum okkur glaðan dag og hjálpum dýrum í neyð og ekki gleyma að klæða ykkur eftir veðri!

Atriði sem þarf að hafa í huga í fjöldagöngu:
Flexi taumar (útdraganlegir) henta ekki í fjöldagöngu. Ef þið eigið bara Flexi, festið tauminn þá í stystu stillingu
Þegar tveir hundar í taum hittast er nauðsynlegt að hafa tauminn slakann! Ef taumurinn er strekktur myndast frekar spenna milli hundanna
Gleymið ekki kúkapokum
Gangan er ekki æskileg hundum undir 6 mánaða aldri
Ekki gleyma kúkapoka og nammi til að halda athygli hundsins.
Hafið augun á ykkar hundi, alltaf.
Þessi ganga er því miður ekki ætluð hundum sem kunna ekki að vera í kringum aðra hunda
Alls ekki koma með lóðatíkur - það er ávísun á slagsmál

See More
Time:1:30PM Sunday, November 29th
Location:Reiðhöllin í Víðidal
Valgerður
Valgerður
Æðisleg ganga, takk kærlega fyrir okkur :)
November 29, 2009 at 10:58am
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Sælir dýravinir! Er einhver hér á leið til Akureyrar á næstu dögum sem er til í að taka eins og eitt stykki hund með sér? :o) Hann er voða góður í bíl og er á leið á yndislegt fósturheimili!

November 23, 2009 at 11:50am
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Lady er 19 ára heyrnarlaus Íslensk/Sheffer blanda sem týndist frá heimili sínu við Kársnesbraut í Kópavogi að kvöldi 19.nóvember. Hennar er sárt saknað og ef þið verðið hennar vör þá endilega hafið samband við Guðbjörn í síma 892-3761.

Magnús Ragnar Magnússon
Magnús Ragnar Magnússon
Þeir sem fóru illa með Lady, ættu að skammast sín fyrir það hrotaverk sem þeir gerðu hundinum. Því ef þeir halda að þetta sé eitthvað djók, þá er þetta versti kvikindiskapur sem maður getur hugsað sér og horft á. Ég ber samhug til hundsins og eiganda þess og vona að svona gerist aftur.
November 21, 2009 at 1:03pm
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Dýrahjálp verður með ættleiðingardag í Dýraríkinu, Garðabæ á laugardag á milli kl 13:00 og 17:00. Á staðnum verða kettir, hundar og kanínur sem eru í leit að framtíðarheimili. Allir að mæta í sínu fínasta pússi til að skoða falleg dýr og jafnvel falla fyrir einu slíku! :)

November 5, 2009 at 3:22pm
Elísabet
Elísabet
oh mig langar alltaf að ættleiða fleiri kanínur... En ég er með þrjár fyrir! :P
Gangi ykkur vel ♥ ♥ ♥
November 6, 2009 at 3:23am
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Þessi dama hrópaði hástöfum á hjálp á Hverfisgötunni. Hún er svört og hvít og aaafskaplega sæt og kelin. Ef einhver kannast við hana, hafið samband í síma 663-5707 (Lilja)

Lilja
Lilja
Hún er komin til síns heima!! :) Æðislegt hvað facebook virkar vel - endilega "suggest to friends" svo að networkið verði enn öflugra!! :)
November 5, 2009 at 2:03pm
Dýrahjálp Íslands

Dýrahjálp Íslands Daníel Ágúst er 8 vikna kolsvartur snúlli sem vantar voðalega góða eigendur til að sjá um sig! Hann kom á fósturheimili 5 vikna gamall, frá villilæðu og því er hann enn sem komið er smávegis tortrygginn gagnvart fólki. Það er þó allt að koma hjá honum og þótt hann hlaupi ennþá ekki til manns þegar maður kallar þá vill ...hann vera í kringum mann, og finnst voða gott að fá að kúra hjá manni og fá knús (hálsakotið er líka vinsæll kúristaður á nóttunni), svo að hann sýnir góða tendensa í að verða algjör knúsikisi. Hann er algjört matargat og kvartar hástöfum ef honum finnst honum ekki nógu mikil athygli sýnd, svo hann er greinilega mikill karakter, fósturmamman er ekki frá því að hér sé kominn upprennandi hefðarkisi! Hann þarf þó á eigendum að halda sem hafa svoldinn tíma fyrir hann svona í byrjun.

Ef þú hefur áhuga á að ættleiða Daníel Ágúst, hafðu þá samband í síma 663-5707 (Lilja)

See More
RECENT ACTIVITY