
Nattura.info (Náttúra)
Gefum íslenska gjöf, gefum Íslandi gjöf!
Mýmörg smáfyrirtæki um land allt taka þátt í átaki um kynningu og sölu gjafavöru og góðrar þjónustu. Úrvalið er mikið: Gæðamatvæli, hlýr fatnaður, vandaðir munir, gisting við þjóðveg eða úti í auðn, alúðar bað- og heilsumeðferð fjarri skarkala höfuðborgar, svo fátt eitt sé nefnt.... Nógur er fjölbreytileikinn, en til að auka eftirspurn þarf að minna á gróskuna og gæðin.
Með því að gefa ástvinum og vandamönnum trygga ávísun á sérstæða upplifun og innlendan kost, þá er ekki einungis verið að gefa góða íslenska jólagjöf, heldur jafnframt verið að gefa Íslandi sjálfu gjöf; Að gefa fjölbreytilegum sprotavexti áburð er að stuðla að þeirri sjálfbæru þróun efnahags- og atvinnuuppbyggingar landsins sem nú er aðkallandi.
Björk Guðmundsdóttir er í forsvari fyrir átaksverkefnið og er í samvinnu við vef Náttúra.info, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Atvinnuþróunarfélög landsins, Hönnunarmiðstöðina og smáfyrirtæki um land allt.
Útlit gjafabréfs er hannað af Hrafni Gunnarssyni, grafískum hönnuði, í samstarfi við Hönnunarmiðstöð Íslands.
http://www.nattura.info/islenskgjof
Gefum íslenska gjöf, gefum Íslandi gjöf!
Time:3:00PM Tuesday, December 16th
Location:Island
RECENT ACTIVITY
Nattura.info (Náttúra) discussed Íslensk Gjöf on the Nattura.info (Náttúra) discussion board.
Nattura.info (Náttúra) added the album Náttúra by Björk with Thom Yorke to their discography.
Nattura.info (Náttúra) discussed The Dialogue of Náttúra on the Nattura.info (Náttúra) discussion board.















