
Nexus
frábært að sjá svona myndir, það var nú stuð meðan beðið var eftir Potter.
Endilega setjið inn myndir ef þið eigið. Það er sérstakur reitur fyrir "fan photos" hér til hægri á síðunni.

Nexus Gömlu Get Smart þættirnir munu ekki vera fáanlegir á DVD samkvæmt upplýsingum frá Gísla.

Nexus
NEXUSFORSÝNING: The Dark Knight
-------------------------------
21. júlí kl. 22:20
2 dögum fyrir Íslandsfrumsýingu 23 júlí.
Kringlubíó salur 1
ótextuð - ekkert hlé
sýnd af filmu, 152 mín.
Númeruð sæti að eigin vali
Sala miða hefst kl. 12:00 miðvikudaginn 16. júlí engöngu í Nexus
Miðaverð 1.700 kr.
Loksins er framhald hinnar ge...ysivirtu Batman Begins komin.
Nýji Marvel-kvikmyndaheimurinn fær verðuga samkeppni frá hinum myrka riddara Gotham borgar
og endursögn Batman-sögunnar í kvikmyndaformi gerist mun myrkari og dramatískari
með tilkomu Jókersins.
Nexus-menn eru búnir að sjá myndina og mæla óspart með henni.
Nolan-bræðurnir sem skrifa handritið ganga enn lengra í að staðsetja Batman
í eins raunverulegum heimi eins og hægt er og það verður að segjast að
þetta er hárrétt ákvörðun hjá þeim, og ljær myndinni fullorðinslegri blæ
en maður á að venjast af myndum um ofurhetjur. Þetta minnir á hvernig Frank Miller
gerði á sínum tíma Daredevil myndasögurnar meira að glæpadrama en ofurhetjusögum.
Heath Ledger sálugi á stórleik sem snarklikkaður Jókerinn
og er öruggur um tilnefningu til óskarsverðlauna.
Myndin fær PG-13 aldursviðmiðun í Bandaríkjunum (ekki mælt með að börn undir 13 ára sjái hana)
og er alls ekki við hæfi ungra barna að mati Nexus.
Dómar er farnir að birtast á Rotten Tomatoes.com
og eru komnir í 88% þegar þetta er ritað.
Dómar: http://www.rottentomatoes.com/m/the_dark _knight/
The Dark Knight - Trailer -> http://www.topp5.is/?sida=biobrot&id=788
The Dark Knight - Tonight's Entertainment myndskeið -> http://www.topp5.is/?sida=biobrot&id=819
En Nexus mælir með eins og venjulega að vita sem minnst.

Nexus
Júli útsala Nexus hefst þriðjudaginn 1. júli kl.10:00
Sú Stærsta til þessa!
Allt á gamla genginu!!
Hlauptu... Áður en allt Klárast!!!
Leikföng, DVD, bækur, spil, Warhammer og myndasögur.
Frá lager Nexus... kom án viðvörunnar... Sonur útsölunnar sem át Reykjavík
Time:10:00PM Tuesday, July 1st
Location:Spilasalur Nexus

Nexus
Nexus kynnir Spunamót í Hellinum TÞM Granda 7-8 Júni
Aðgangseyrir er 1500 kr. og veitir aðgang að þremur mismunandi þema-tímabilum.
Laugardaginn tólf til átta verður byrjað með því að demba sér í ýmis vísindaskáldsöguspil þar sem tæknin ræður ríkjum.
Á laugardagskvöld skiptum við yfir í hryllings-þema og berjumst við óvæ...tti sem eru ofan mennskum skilning. Það stendur fram á nótt og er eingungis opið þeim er hafa sjálfræðissrétt eða uppáskrift frá foreldrum um leyfi til veru þar.
Sunnudaginn sláum við svo botninn í mótið með fantasíuspilum og grípum í Dreka og Dýflissur uppá gamla mátann.
Nánari upplýsingar og skráning fer fram í Nexus og vonumst við til góðrar mætingar spunaspilara hvort sem það eru nýliðar eða þrautvanir gamlingjar.
Helgi Már
Nexus
S:552-9011/552-9012
Sci-fi/Modern Frá 12-20
RIFTS
Stjórnandi: Jens
Aldurstakmark: 14+
Fjöldi spilara: 5-6
Reykingapásur: Fáar
Lýsing: Í fjarlægri framtíð, hundruðum ára eftir ólýsanlega og hræðilegar náttúruhamfarir
um allan heim, hefur mannkynið þurft að búa í breyttum heimi galdra og framandi vera frá öðrum
heimum. Stríðsherra einn í Rússlandi hefur ákveðið að ráðast á ríki hinns dularfulla Jared-Sin og sendir því sérsveit hermanna sinna á undan til að undirbúa árásina. Kerfið í RIFTS er keimlíkt D20 og því auðvelt fyrir þá sem kunna það að spila það.
Predator
Stjórnandi: Tómas Gabríel
Kerfi: World of Darkness
Aldurstakmark: 16+
Fjöldi spilara: 4
Reykingapásur: Illa séðar
Lýsing: Samband rofnaði við sendiskip fyrir nokkrum vikum, sendiskip með mikilvægan farm. Því er trúað að skipið hafi brotlent á blárri plánetu þar sem hálf-gáfaðir tvífætlingar lifa. Spilarar fara í hlutverk Predator veiðihóps sem þarf að finna og endurheimta skipið áður en tæknin og farmurinn fellur í hendur mannapana. Búast má við þó nokkurri rannsóknarvinnu svo og einhverjum (blóðugum) bardagasenum.
Rapture: a new begining
Stjórnandi: Theó
Kerfi: World of Darkness
Aldurstakmark: 16+
Reykingapásur: Fáar
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: Heimurinn endar eins og biblían sagði til um, en mennirnir sem eftir eru snúa vörn í sókn.
Nettur Fallout fílingur með lovecraft/end of days ívafi
CyberPunk
Stjórnandi: Gunnar Jörvi
Aldurstakmark: 15
Reykingapásur: Fárar
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: Spilarar eru meðlimir í samtökum sem berjast gegn stórfyrirtæki sem lagði líf þeirra í rúst, og það er komið að skuldadögum. John Woo, rokk and role og stórar byssur.
Horror Frá Kl 21 Til Seint
Call of Cthulhu
Stjórnandi: Jóhann Ingi
Reykingarpásur: Í færri kantinum
Fjöldi spilara: 5-6
Aldurstakmark: 14+
Lýsing: Inniheldur erfðarskrá, gamla bók, mikið blóð, geðveiki og dularfull morð. Reynsla skiptir ekki máli ,eina sem skiptir máli er að geta hugsað frá sjónarhorni karakters og ekki búast við miklum hasar (hack 'n' slash lið vinsamlegast afþakkað) "Old school" Call of Cthulhu með smá twist.
CthulhuTech
Stjórnandi: Jens
Aldurstakmark: 16+
Reykingapásur: Fáar
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: 2085. Mannkynið horfir fram á í útrýmingu. Skordýr frá útjaðri sólkerfisins, sem hafa
lengi verið hulin, herja á jörðina til að hneppa mannkynið í þrældóm. Herir ólýsanlegs hryllings koma út úr mið-Asíu og leggja allt sem á vegi verður í eyði. Kirkja fiskiguðsins leitar um heiminn að galdra-leyndarmálum til að leysa úr læðingi hræðileg öfl. Dauðir guðir vakna og snúa illum augum sínum til Jarðar. Innan nýju ríkisstjórnar jarðarinnar er mein sem étur úr hjarta samfélags manna. Spilarar eru menn í leyniher sem nota samlífunga úr annari vídd sem vopn í stríði sínu við hættulega söfnuði sem ógna mannkyninu.
D&D 3.5, Ravenloft
Stjórnandi: Þorsteinn Már
Reykingarpásur: Í lágmarki
Aldurstakmark: 17 ára. Ætlast er til að spilarar hafi þó þroska og áhuga til að einbeita sér að spiluninni.
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: Í þorpinu Weltbrunn hefur það verið til siðs að fara ekki út í skóg á nóttum þegar fullt tungl er, reynslan hefur kennt þorpsbúum að skógurinn á það til að taka þá til sín sem á það hætta. Þorið þið inn í Nachtwood?
Ævintýri ætlað reyndari spilurum og þeim sem eru ekki klígjugjarnir. Þekking á Ravenloft er ekki nauðsynleg, en betra að hafa ágætan skilning á D&D kerfinu. Þetta er roleplayheavy ævintýri og lagt upp úr því að spilarar spili persónur sínar og eigi í samskiptum sín á milli og við aukapersónur í karakter.
Level: 4th
Legacy of Kain
Stjórnandi: Sveinn Orri Bragason
Kerfi: Vampire the Requiem
Aldurstakmark: 14+
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: Í heimi Nosgoth er ekki allt með felldu, vampírur og hermenn þeirra herja á mannheima í þeim tilgangi að brjóta þá á bak aftur og ná varanlegri fótfestu sem máttugasta ríki dagsins á morgun. Hinsvegar birtir fyrir í myrkri herferð húmfara þegar stríðsherra þeirra og faðir hefur horfið sporlaust. Enginn tími vinnst til að beisla herdeildir þeirra við leitina, svo synir Kains verða að taka að sér að finna hann aftur áður en það verður of seint.
Fantasy Sunnudagur frá 12 til Circa 20
D&D 3.5, Klassískt
Stjórnandi: Þorsteinn Már
Reykingapásur: Engar reykingar
Aldurstakmark: 14 ára. Ætlast er til að spilarar hafi þó þroska og áhuga til að einbeita sér að spiluninni.
Fjöldi spilara: 5-6
Lýsing: Hetjurnar þurfa að koma ungri konu í nauð til bjargar. Fínt ævintýri fyrir þá sem eru að stíga sín fyrstu skref í heimi hlutverkaspila, þó svo eldri og reyndari spilarar geti haft jafn gaman af því.
Level: 2nd
Defense of Nactkrige Keep
Stjórnandi: Helgi Már Friðgeirsson
Kerfi: D&D 3.5
Aldurstakmark: 14+
Fjöldi spilara: 5-6
Reykingapásur: Fáar
Level: 7 Með mjög hefðbundnum en óklisjulegum persónum.
Inniheldur blöndu af bardögum og góðu hlutverkaspili.
Ævintýramenn eru fengnir til að verja hið forna Nactkrige Keep meðan herdeildir keisarynjunar verjast innrásum myrkraveldisins úr norðri. Hver er nógu harður til að lifa af nóttina? Hvað dvelur í hinu forna virki sem spilurunum er ætlað að verja til síðasta manns? Ekki er allt sem sýnist í náttmyrkrinu…
Paths of the Damned (Part one)
Stjórnandi: Björgvin G Björgvinsson
Kerfi: Warhammer Fantasy Role Play
Aldur: 13+
Reykingapásur: Fáar
Fjöldi spilara: 5
Í myrkum heimi, þar sem ekkert er ókepis eru menn, dvergar og álfar að berjast fyrir því littla sem þeir eiga. Frá norðri koma hinu myrku öfl hinna illu fjögurra Kaos guða, frá vestri koma hinir myrku álfar, þeir hneppa alla sem þeir sjá í þrældóm, frá vestri koma hinir dauðu, stjórnað af mönnum sem sofa aðeins á daginn og berjast á nóttunni, í suðri eru Orkar sem berjast út af engri sérstakri ástæðu.
Á þessum tíma eru fáir sem standa upp og berjast fyrir því sem þeir telja vera rétt, við hefjum för okkar með 5 hetjum sem hafa tekið sig saman og ákveðið að berjast gegn hinum illu öflum .
För okkar byrjar þegar þessar 5 hetjur eru að leiða hóp af flóttarmönnum burt frá bænum "Schwarchtag" þessi bær var brenndur þegar hermenn hinnu myrku guða réðust á hann. Þeir fáu sem eftir eru af bæjarbúum flýja nú til Borgarinnar "Middenheim" sem er ein stærsta borg Manna.
Loksins aftir langa bið...
Time:12:00PM Saturday, June 7th
Location:Hellirinn TÞM Granda
May 20, 2008 at 9:06am













