Basic Info
- Location:
- Stokkseyri, Iceland, 825
- Phone:
- 896-5716
Detailed Info
- Website:
- http://www.stokkseyri.is
- Public Transit:
- Aðstaða fyrir: Tjöld Tjaldvagna/fellihýsi/hjólhýsi Húsbíla
Verð 700 kr. á mann pr/nótt
frítt yngri en 14 ára
Rafmagn 400 kr.
með tjaldstæðinu fylgir ókeypis aðgangur í Töfragarðinn og leiktækin í garðinum. Þar er t.d. 100m2 hoppupúði, klifurnet og frábært kaffihús þar sem hægt er að fara í pool og þythokky, selt sér inn á skemmtanir sem haldnar eru í garðinum.
Á Stokkseyri er tilvalið að dvelja og þar á engum að leiðast. Bryggjuhátið verður haldin í júlí. Fjölskyldudagar um verslunarmannahelgina.
Á Stokkseyri er kaffihús "Kaffi Sól", Kajakaferðir fyrir alla fjölskylduna, innifalið er í sundlaugina og heita potta eftir ferð á opnunartíma laugarinnar, hið fræga Draugasetur, Álfa, Trölla- og norðurljósasafnið, Rjómabúið á Baugstöðum, Þuríðarbúð, Töfragarðurinn, Veiðisafnið, veitingastaðurinn Við Fjöruborðið, í Lista- og Menningarverstöðinni eru margir lista- og handverksmenn með vinnustofur og gallerí. Í Shellskálanum fæst matvara og ýmiss varningur.
Fjaran við Stokkseyri er rómuð fyrir mikla náttúrufegurð og nýtur gífurlegra vinsælda meðal ferðamanna. Fyrir austan Stokkseyri er Knarrarósviti en hann er 26 metra hár.










