Ég hef heyrt því fleygt að það sé nokkur ólga meðal eigenda trjáa í Árnaskógi vegna skorts á upplýsingaflæði fá skógarverðinum. Nú um daginn gekk svokölluð haustlægð yfir landið með þeim afleiðingum að vöruflutningabílar tókust á loft og ástæða til að óttast um afdrif plantna í Árnaskógi. Einnig hefur heyrst af því að skuldþjakaðir íbúar úthverfanna sem eigi ekki fyrir hitaveitureikningum gangi nú um og höggvi sér tré til að nota sem eldivið.
Ákveðið hefur verið að gróðursetja tré til minningar um poppgoðið Michael Jackson sem lést af sökum hjartastopps fyrr í kvöld. Hann var 50 ára gamall og átti að baki farsælan feril sem popptónlistarmaður. Ekki er komið á hreint hverskonar tré verður gróðursett eða hvenær en líklegt er að það verði stórmerkilegt… alveg eins og Jackson var. Tréið mun að sjálfsögðu taka nafn poppgoðsins… Michael Jackson.
Verið velkomin í Árnaskóg. Það er fyrirhuguð gróðursetning á plöntunum ykkar á morgun. Fljótlega mun ég síðan birta yfirlitsmynd af skóginum þar sem plönturnar ykkar verða merktar inná.