Í morgun kl 09 mældist snjódýptin í Reykjavík 51 cm! Það er nýtt met fyrir febrúar en gamla metið var 48 cm og er frá árinu 1952. Mesta snjódýpt sem mælst hefur í Reykjavík er 55 cm en það var 18 janúar 1937. Á myndinni má sjá náttúruvársérfræðing mæla snjódýptina nú í morgun.
— with Kristín Elíza Guðmundsdóttir.