Í kvöld mælti ég fyrir þingsályktunartillögu um langtímastuðning okkar Íslendinga við Úkraínu.
Það þarf ekki mörg orð um mikilvægi þess máls. Innrásarstríð Rússlands er alvarlegasta öryggisógn sem steðjað hefur að Evrópu frá lokum síðari heimsstyrjaldar og skýr atlaga að alþjóðakerfinu sem byggist á virðingu fyrir lögum, landamærum og landhelgi.
Tillagan nær til ársins 2028 og festir í sessi umfangsmikinn stuðning síðustu ára, og meira til. Bæði styrkjum við beinar varnir Ú...kraínumanna gegn innrásarliðinu, leggjum til mannúðaraðstoðar við íbúa landsins, styðjum við uppbyggingu og viðhald innviða og aukum bein samskipti við stjórnvöld, þjóðþing, stofnanir og atvinnulíf í landinu.
Við ætlum áfram að nýta kraft smæðarinnar í stuðningi okkar, líkt og við höfum gert undanfarin misseri í verkefnum á borð við hergagnaflutninga og færanlegt neyðarsjúkrahús síðasta sumar. Um þessar áherslur má nánar lesa í meðfylgjandi þingsályktunartillögu, en meginatriðið er þetta;
Ísland á allt sitt undir því að lögum og reglum á alþjóðavettvangi sé fylgt og fullveldi, sjálfsákvörðunarréttur og landamæri þjóða varin og vernduð. Að standa með Úkraínu jafngildir því að standa með okkur sjálfum. Við munum styðja baráttu Úkraínu af fullum krafti eins lengi og þörf er á.