app-facebook
Gunnar Smári Egilsson
about 4 years ago

Nú þegar þjóðir heims eru að fella styttur af þrælasölum og þrælahöldurum geta Íslendingar velt fyrir sér hvort við eigum að hampa þessum gaur mikið lengur. Þetta er hann Ingólfur Arnarson sem bældi með ofbeldi fyrstu alþýðuuppreisn Íslandssögunnar, þegar hann myrti frelsishetjurnar Dufþak og Helga í Vestmannaeyjum, þræla sem gert höfðu uppreisn gegn kúgara sínum Hjörleifi. Ingólfur hafði líkt og Hjörleifur keypt sér þræla og einnig rænt fólki og hneppt í þrældóm, sem sagt no...kkurn veginn síðasta sort af manngerpi (það er ekki til ein saga af mennsku Ingólfs, aðeins ómennsku). Vífill og Karli voru meðal þræla Ingólfs. Ef fólk vill ekki setja Dufþak upp á stall Ingólfs á Arnarhóli, mætti setja þar styttu af Karla eða Vífli sem táknmyndum hinnar kúguðu alþýðu í aldanna rás, þræla og vinnufólks. Nú eða vatnsberann hans Ásmundar sem nú er neðst í Bakarabrekkunni.

See more
108
48
10