Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadottir
около 9 мес. назад

Í stjórn­arsátt­mála rík­is­stjórn­ar­inn­ar er kveðið á um að stjórn­völd muni halda áfram að draga úr eign­ar­haldi rík­is­ins í fjár­mála­kerf­inu og nýta fjár­muni sem liggja í slík­um rekstri í upp­bygg­ingu innviða.

Eigendastefna ríkisins fyrir fjármálafyrirtæki er samhljóða og þar er meðal annars kveðið á um stuðla skuli að samkeppni í fjármálastarfsemi. Ég hef lagt mikla áherslu á að þessari stefnu sé fylgt eftir og á næstu dögum mæli ég fyrir um frumvarp um sölu eftirstandandi hlutar ríkisins í Íslandsbanka.

Þrátt fyrir allt þetta mun Landsbankinn, sem er í tæplega 100% í eigu ríkisins en eigendastefna kveður á að draga eigi úr eignarhaldi ríkisins þar, að óbreyttu stækka og stíga afgerandi inn á nýjan markað með kaupum á stóru fyrirtæki á markaði, TM.

Ríkisfyrirtæki á ekki að kaupa tryggingafélag. Ríkið á að losa um tugi milljarða og umbreyta þeim í samfélagslega innviði sem almenningur nýtur góðs af og byggir undir frekari verðmætasköpun og samkeppnishæfni allra landshluta. Kröftum okkar er betur borgið í öðrum fjárfestingum en í tryggingastarfsemi, sem af mér vitandi enginn hefur kallað eftir að sé í ríkisrekstri.

Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki, nema söluferli Landsbankans hefjist samhliða. Ég hef óskað skýringa á málinu frá Bankasýslu ríkisins sem heldur um eignarhluti ríkisins í bankanum og setur almenn viðmið um áherslur í rekstri auk þess að fylgja eftir eigendastefnu ríkisins.

Ещё
181
21
4