Frábær dagur. Sjaldan upplifað eins mikla jákvæðni og almenna velvild og gleði eins og á Dalvík í dag og eflaust var það eins á hátíðum og samkomum um allt land. Þakkir til þeirra sem tóku svona vel á móti okkur og allra sem standa að slíkum viðburðum þar sem gleði og samkennd ráða för!

Image may contain: 12 people , people smiling , crowd and outdoor

Áhugaverð 1X2 uppskrift að Evrópumeistaratitli:

Portúgal – Ísland X
Portúgal – Austurríki X
Ungverjaland – Portúgal X...
Króatía – Portúgal X
Pólland – Portúgal X
Portúgal – Wales 1
Portúgal – Frakkland X

See More

Fékk mér bratwurst með leiknum en það dugði ekki til fyrir Þjóðverjana.
Þýskaland tapaði fyrir Frakklandi með tveggja marka mun og Íslendingar töpuðu fyrir þeim með þriggja marka mun. Það er innan skekkjumarka. Einstaklega gaman að sjá þýska áhorfendur hvetja sitt lið með víkingaklappinu og franska landsliðið taka það svo með sínu fólki í lokin. Eins og bresku sjónvarpsmennirnir sögðu: ,,Ísland gaf þessari keppni ótrúlega mikið".

Óskum landsliðinu til hamingju með stórkostlegan árangur á EM! 8 liða úrslit. Sigur á Englandi. ,,Unnu" svo Frakka 1-2 í seinni hálfleik. Gleymið ekki að síðast sigruðu Spánverjar Ítali 4-0 í úrslitaleik. Áfram Ísland, áfram!

No automatic alt text available.

Hamingjuóskir til vina okkar frá Wales. Vel af sér vikið! Unnu næst-hæst skráða lið heims og mæta Portúgal í undanúrslitum, liði sem enn hefur ekki unnið leik á venjulegum leiktíma (lagavalið táknar því ekki að þeir séu að fara heim).

Tom Jones - Green Green Grass Of Home 1967 The old home town looks the same as I step down from the train, and there to meet me was my Mama and Papa. Down th...
youtube.com

Mér er orða vant. Þetta er algjörlega stórkostelegt! Ef Hannes fær ekki fálkaorðuna gef ég honum mína.

Sögulegur dagur

Við lifum á merkilegum tímum. Útganga Bretlands úr ESB er sannarlega stór söguleg tíðindi. Það er ekki bara vegna þess að eitt mesta efnahagsveldi heims og öflugasta hernaðarríki Evrópu er að ganga úr Evrópusambandinu. Þetta er líka sögulegur viðburður vegna þess sem hann segir okkur um þróun stjórnmála á Vesturlöndum og vegna þess að þetta er upphafið að enn meiri breytingum.

Frá því að ég hóf að fylgjast með stjórnmálum hef ég haft áhyggjur af Evrópusambandi...nu (áður Evrópubandalaginu), eðli þess og þróun. Ég kveið árinu 1992 vegna þess að það ár stóð til að undirrita Maastricht-sáttmálann. Það gekk eftir og grunnur var lagður að evrunni og annarri samrunaþróun sem að mínu mati var og er hættuleg.

Ég minnist þess enn þegar ég vakti nokkrar nætur árið 1994 til að fylgjast með niðurstöðum þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-aðild í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Austurríki. Aðeins Noregur felldi aðild. Mestar áhyggjur hef ég þó haft af veru Bretlands í Evrópusambandinu. Bretland hefur aldrei passað í ESB (og þrátt fyrir allt er ég mikill Bretlandsvinur).

Það skiptir alla miklu máli að það gangi vel að vinda ofan af áformum um aukið yfirþjóðlegt vald og samruna Evrópusambandsins en að um leið takist að standa vörð um samvinnu Evrópulanda. Þar getur Ísland gegnt mikilvægu hlutverki.

Við bárum gæfu til að hverfa frá áformum um að ganga í ESB. Nú ættum við að hafa forgöngu um að nálgast Bretland fyrir okkar hönd og EFTA og sýna strax að vilji okkar standi til að viðhalda góðu samstarfi og byggja til framtíðar á góðri samvinnu og viðskiptum sjálfstæðra ríkja.

See More

Til hamingju frændur okkar og vinir í Veils (Wales). Það er ekki lítið afrek að enda efstir í riðlinum og það fyrir ofan Englendinga. Þá er það bara Ísland-England, svo framarlega sem við lendum í 2. sæti. Annars Ísland-Belgía eða Ísland-Þýskaland/Spánn.

Þessi var að úrskrifast. Til hamingju Nanna!

Image may contain: 2 people , sunglasses, stadium, crowd and outdoor

Fáninn, þjóðsöngurinn, stuðningsmennirnir, landið og liðið hafa öðlast miklar vinsældir og hin áður umdeilda treyja Íslands fær auk þess góða dóma. 4. sæti hér:

02 Jun 2016 Euro 2016 kits: all 48 home and away shirts ranked Previous slide Next slide 1 of 49 View All Skip Ad The groups are drawn, the schedule is decided, the venues are readied, there is little to no doubt that the 2016 European Championships are nearly upon us. Let's celebrate this moment in...
telegraph.co.uk

1-1 á móti Portúgal. Þvílíkur sigur!

Þýskaland - Úkraína

-Um tíma var stór hluti þýska landsliðsins frá þeim hluta landsins sem áður var Austur-Þýskaland. Nú er bara Toni Kroos eftir allir hinir (sem á annað borð fæddust í Þýskalandi) eru „Vestur-Þjóðverjar“. Toni er frá Greifswald, mjög fallegum bæ í norð-austanverðu Þýskalandi.

-Tveir af bestu leikmönnum liðsins undan farin ár eru frá Póllandi, Lukas Podolski og Miroslav Klose (sem nú er hættur í landsliðinu vegna öldrunar). Þeir eru báðir frá Slesíu sem áður ...tilheyrði Þýskalandi. Mæður þeirra beggja voru í pólska handboltalandsliðinu (og kepptu á Íslandi ef ég man rétt). Feður þeirra spiluðu fótbolta og áttu báðir foreldra sem höfðu verið þýskir ríkisborgarar fyrir seinni heimsstyrjöld. Á þeim forsendum fengu báðar fjölskyldurnar leyfi til að setjast að í Þýskalandi.

-Þýska landsliðið er næst-yngsta liðið í keppninni en leikmenn þess eru engu að síður með lang-mesta leikreynslu eða 50 landsleiki að meðaltali. Það telst væntanlega nokkuð góð samsetning. -Næstir á eftir Þjóðverjum koma Úkraínumenn með 40 landsleiki. Ísland stendur líka vel að vígi hvað þetta varðar (í 4.-7. sæti yfir reynslumestu lið og fimmta yngsta liðið).

-Þetta er í fyrsta sinn sem Úkraína tryggir sér sæti í úrslitum EM með árangri í undankeppninni. Þeir tóku þó þátt síðast sem gestgjafar (2012 var keppnin haldin í Úkraínu og Póllandi). Þeir lentu í þriðja sæti í riðlinum í undankeppninni en komust í úrslitakeppnina með því sigra Slóveníu í umspili. Fram að því hafði Úkraína fimm sinnum komist í umspil um sæti á stórmóti og alltaf tapað.

-Margir af bestu knattspyrnumönnum (og öðru íþróttafólki) frá Sóvíetríkjunum voru úkraínskir.

-Dínamó Kíev hefur stundum verið á meðal bestu félagsliða Evrópu. Flestir núverandi landsliðsinsmenn, átta talsins, eru hins vegar frá aðalkeppinautunum, Shaktar Donetsk. Fimm spila fyrir Dínamó.

-Donetsk hefur náð miklum árangri á undanförnum árum en frá því að uppreisnarmenn hernámu borgina árið 2014 hefur liðið leikið
heimaleiki sína í Lviv í hinum enda landsins.

-Aðeins tveir leikmenn í landsliðshópnum spila fyrir lið utan gömlu Sóvíetríkjanna (í Tyrklandi og á Spáni).

-Úkraína hefur spilað fimm landsleiki við Þýskaland, aldrei unnið, gert þrjú jafntefli og tapað tvisvar.

See More

England - Rússland

-Rússneska knattspyrnusambandið hefur verið með eigið landslið frá 1992 og þar áður frá 1912 til 1917 (þegar eitthvað kom upp á).

-Frá endurstofnun knattspyrnusambandsins hefur Rússland alltaf komist í úrslit á EM nema árið 2000. Liðið hefur oft þótt sterkt og miklar vonir verið bundnar við það en aðeins einu sinni hefur það komist upp úr riðlakeppninni, árið 2008 þegar liðið tapaði fyrir Spáni í undanúrslitum.

...

-Sóvíetríkin voru hins vegar fyrsta landið til að verða Evrópumeistarar. Það var árið 1960 í Frakklandi og þrisvar í viðbót komust þeir í úrslit, síðast 1988 gegn Vestur-Þýskalandi.

-Stærsta tap Sóvíetríkjanna var gegn Englandi árið 1958, 5-0.
-Íslendingar þekkja enska liðið líklega nánast jafn-vel og það íslenska og eru ýmist stuðningsmenn þess eða andstæðingar. Það sama á við víðar, ekki hvað síst á Norðurlöndunum.

-Síðast liðin 50 ár hafa stórmót í fótbolta skipað svipaðan sess fyrir Englendinga og Eurovision gerði fyrir Íslendinga. Þeir halda alltaf að nú sé komið að því að þeir vinni og alltaf verða þeir fyrir vonbrigðum. Að þessu sinni sýnist mér að Englendingar varist að slá neinu föstu. Þeir eru þó á því að liðið sé hið besta um áratugaskeið.

-Þótt Englendingar séu spenntir fyrir fótbolta er ekki hægt að halda því fram að þeir hugsi ekki um annað. Ný könnun Yougov sýnir að Englendingar vilja mun frekar að „rétt“ niðurstaða fáist í þjóðaratkvæðagreiðslunni um ESB en að Englendingar verði Evrópumeistarar í fótbolta. Veilsverjum (sem unnu vini okkar Slóvaka áðan) eru hins vegar ekki eins vissir um hvort vegur þyngra. Sjá meðfylgjandi myndir:

See More
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson's photo.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson's photo.

Veils (Wales) – Slóvakía

-Bæði lið eru að taka þátt í úrslitum EM í fyrsta skipti en lið Tékkóslóvakíu sem varð Evrópumeistarar árið 1976 (eftir sigur á Vestur-Þjóðverjum) var að mestu skipað Slóvökum. Það ár komst Veils reyndar í átta liða úrslit en 1976 léku bara fjögur lið í sjálfri úrslitakeppninni í Júgóslavíu.

-Slóvakar eru geysilega góðir í að gera göng. Þeir hafa unnið að gerð nokkurra jarðganga á Íslandi og eru enn að. Ef þið rekist á Slóvaka er því vel við hæfi að s...egja „ísť Slovákmi!“ (Áfram Slóvakar!)

-Tugir Íslendinga eru við læknanám í Slóvakíu. Mjög skemmtilegur hópur að mér skilst. Þau eru meira að segja með eigið félag (FÍLS – Félag íslenskra læknanema í Slóvakíu).

-Runólfur Oddsson, ræðismaður Slóvakíu á Íslandi hefur verið ötull við að auka samskipti ríkjanna.

-Veilsverjar eiga alltaf einn mjög góðan leikmann. Nú er það Gareth Bale. Hann er gríðarlega góður í fótbolta en hefur tekið upp á því að ganga með hárspöng (líka utan vallar). Það myndi Ian Rush aldrei gera, hvað þá Mark Hughes og líklega ekki Ryan Giggs.

-Að frátalinni hárspönginni er Gareth Bale líkur Christian Bale Batman-leikara sem fæddist líka í Veils (en telur sig Englending). Nokkrir frægir leikarar eru frá Veils, t.d. Richard Burton, Anthony Hopkins, Catherine Zeta-Jones og hinn eini sanni James Bond (Timothy Dalton).

-Veilsverjar eru söngelskir og mikið fyrir karlakóra eins og Íslendingar. Af Veilskum tónlistarmönnum er Íslandsvinurinn Tom Jones fremstur meðal jafningja. Stuðningsmenn veilska landsliðsins hafa gert lag hans Delilah að einkennissöng sínum (þótt einhverjir stjórnmálamenn telji það ótækt vegna óviðeigandi texta). Ég lít fram hjá textanum og læt Deliluh fylgja með fyrir veilska landsliðið og vin minn sem syngur þetta lag í hvert sinn sem hann kemst í karaoke.

See More
Delilah • Tom Jones • Original • 1968 • + Lyrics • Stereo • http://www.tomjones.com • • http://de.wikipedia.org/wiki/Tom_Jones • (German) • http://en.wikiped...
youtube.com

Ég hef ekki fylgst nógu mikið með fótbolta undanfarin ár en með þátttöku Íslands á EM verður breyting á því. Eitt af því sem er skemmtilegt við það þegar lönd keppa á stórmótum í íþróttum er að velta fyrir sér íþróttamönnunum og löndunum sem þeir keppa fyrir. Þess vegna fylgja hér á eftir, og næstu daga, EM punktar:

Albanía-Sviss
Einhverjum þykir e.t.v. Albanía-Sviss ekki vera mjög spennandi viðureign. Það er öðru nær:

...

-Eins og fram hefur komið í fréttum eru sex leikmenn svissneska liðsins af albönskum uppruna og fimm leikmenn Albaníu fæddir í Sviss. Margir þeirra eru frá Kósóvó (sem nú hefur öðlast þátttökurétt á stórmótum og verður með Íslandi í HM-riðli). Þeirra á meðal er aðalhetja svissneska liðsins Xherdan Shaqiri og bræðurnir Granit Xhaka sem keppir fyrir Sviss og Taulant Xhaka sem keppir fyrir Albaníu.

-Allir svissnesku Albanirnir halda miklum tengslum við Albaníu og Granit (sem lenti nýverið í því að vera seldur til Arsenal) langaði að keppa fyrir landið en albanska knattspyrnusambandið svaf á verðinum.

-Svisslendingar áttu næst-flest skot á mark í undankeppninni (á eftir Þjóðverjum)

-Albanía er hins vegar með gríðar-sterka vörn en gengur verr að skora. Þeir skoruðu bara 10 mörk í undankeppninni (þar af eitt í 0-1 sigri á Portúgal) en fengu ekki nema 5 mörk á sig.

-Annars konar varnir voru albönskum stjórnvöldum hugleiknar á kaldastríðsárunum. Þá voru byggð 700.000 skotbyrgi í landinu (mun rammgerðari en þau sem eru í Öskjuhlíð). Það er eitt byrgi á hverja fjóra íbúa og u.þ.b. 24 byrgi á ferkílómetra.

-Svisslendingar nota hins vegar landið sjálft sem virki og láta alla karlmenn á ákveðnu aldursbili geyma hríðskotabyssur heima hjá sér (og allar eru þær öflugri en gamlar norskar MP5).

-Í Albaníu voru einkabílar bannaðir lengur en bjór var bannaður á Íslandi eða til 1991 ...ég vona að ég gefi engum hugmyndir með því að nefna þetta.

See More

Þetta er skemmtilegt. Íslendingar taldir líklegri en Svíar (og Tékkar ofl.) til að verða Evrópumeistarar í fótbolta (til að forðast jinx tek ég þó fram að ég geri ekki ráð fyrir að Íslendingar verði Evrópumeistarar).

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson's photo.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson's photo.

🎂 Í dag er ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks 3 ára. Á þeim stutta tíma hefur náðst meiri árangur en nokkur gerði ráð fyrir. Sá árangur varð þó ekki til átakalaust. Hér fylgja nokkur dæmi í tilefni dagsins:

-Skuldastaða heimilanna hefur gjörbreyst til hins betra. Hún er nú sú besta á Norðurlöndum. Skuldir heimilanna hafi ekki verið lægri síðan 1999, m.v. landsframleiðslu, og mikið hefur dregið úr vanskilum.

-Kaupmáttur launafólks hefur aukist hraðar en dæmi eru... um eða um nærri 24% á þessum þremur árum. Kaupmáttur hefur aldrei verið meiri.

-Þrátt fyrir miklar launahækkanir hefur ríkt lengsti verðlagsstöðugleiki í tugi ára. (1,8% verðbólga á ári sl. þrjú ár að meðaltali sem er einstakt í íslenskri hagsögu).

-Störfum hefur fjölgað um 16.000.

-Atvinnuleysi er orðið hið minnsta í Evrópu og hagvöxtur líklega sá mesti.

-Tekjujöfnuður hefur aukist og hlutfall fátæktar lækkað.

-Framlög til heilbrigðismála hafa aukist um 30 milljarða. Árleg framlög til málaflokksins eru nú rúmlega 30% hærri en þau voru árið 2013.

-Staða ríkissjóðs hefur stórbatnað vegna vel heppnaðrar áætlunar um losun hafta og stöðugleikaframlög og erlend staða þjóðarbúsins er sú besta í a.m.k. hálfa öld.

Ekkert af þessu gerðist af sjálfu sér og stór verkefni bíða enn úrlausnar en ef planinu verður fylgt getur árangur þessara þriggja ára orðið grunnur að áframhaldandi framförum fyrir alla og því að gera íslenskt samfélag betra en nokkru sinni fyrr.

See More

Í morgun birti ég, að veittu samþykki eiginkonu minnar, ítarlegar upplýsingar um eignir og skattgreiðslur okkar hjóna um áratug aftur í tímann.

Vakin er athygli á eftirfarandi atriðum :

1. Erlendu félagi Önnu hefur aldrei verið leynt og eignir aldrei verið í skattaskjóli. Gerð er grein fyrir félaginu, skráningarlandi þess og öllum eignum á skattframtali.

...

2. Félagið eða skráningarland þess eru ekki notuð til að draga úr skattbyrði. Anna hefur ætíð greitt fullan skatt af eignum sínum og tekjum í samræmi við íslensk lög.

3. Við framtalsgerð hefur verið horft í gegnum félagið eins og það hafi aldrei verið til og eignir þess skráðar sem bein eign Önnu frá því ári áður en svo kallaðar CFC-reglur tóku gildi. Sú varfærna leið að greiða skatta af öllum eignum, hverri fyrir sig, í stað þess að nýta félagið og líta á það sem fyrirtæki í atvinnurekstri (og skila CFC-framtali) hefur skilað sér í hærri skattgreiðslum til ríkisins en ef stuðst hefði verið við atvinnurekstrar-/CFC-leiðina. Sú leið myndi auk þess þýða að komast mætti hjá skattgreiðslum næstu árin vegna uppsafnaðs taps.

4. Anna nýtti ekki tækifæri til að fresta skattlagningu söluhagnaðar þegar hún seldi hlut sinn í fjölskyldufyrirtækinu.

5. Hjálögð gögn sýna að á umræddu tímabili námu skattgreiðslur okkar hjóna tæpum 300 milljónum króna. Reiknað til núvirðis má áætla að skattgreiðslur af eignum eiginkonu minnar nemi hátt í 400 milljónum.

6. Leiðrétting umsýslufélags á skráðu eignarhaldi 31. desember 2009 breytir engu um skattgreiðslur vegna Wintris.

7. Á yfirlitinu má sjá að Anna hefur ekki hagnast á því að geyma fjármagn sitt erlendis eins og hún hefur gert til að forðast árekstra við stjórnmálastörf mín. Ljóst má vera að hún hefði hagnast á því að geyma peninga í verðtryggðum íslenskum hávaxtakrónum eða íslenskum hlutabréfum.

8. Skattayfirvöld hafa aldrei gert athugasemd við með hvaða hætti talið er fram. Eins og sjá má í töflu 5 í hjálögðum gögnum hefur sú leið sem farin var við framtalsgerð enda skilað ríkissjóði hærri skattgreiðslum heldur en ef gert hefði verið upp eins og um félag í atvinnurekstri væri um að ræða, þ.e. hin svokallaða CFC-leið.

See More